ath. verð er án VSK
Spennandi morðgáta þar sem skáldskapurinn verður skyndilega að veruleika.
Jess er nemandi í virtum heimavistarskóla og reynir yfirleitt að vekja sem minnsta athygli. En þegar einn vinsælasti strákur skólans finnst myrtur breytist allt. Morðið er nefnilega nákvæmlega eins og morð sem Jess lýsti í smásögu sem hún skrifaði fyrir skólann.
Fljótlega fær Jess dularfull skilaboð frá morðingjanum þar sem henni er þakkað fyrir innblásturinn. Nú þarf hún að komast að því hver stendur á bak við morðið – áður en hún verður næsta fórnarlamb.
This Book Kills eftir Ravenu Guron er hörkuspennandi morðgáta, full af leyndarmálum, grunsemdum og óvæntum vendingum.