Usborne English


Usborne English lestrarbækur með CD hljóðdisk eða hljóðfæl og verkefnum

Þyngdarstig 1 - ljósfjólublár kjölur

Líflegar og fallega myndskreyttar lestrarbækur fyrir byrjendur. Þær eru 150 - 250 orð að lengd og efnið er sígildar sögur, þjóðsögur og fróðleikur. CD hljóðdiskur eða hljóðfæll fylgir þar sem textinn er lesinn bæði með breskum og amerískum framburði sem eflir hlustun og skilning. Kennsluverkefni er hægt að nálgast með því að smella á tengilinn undir viðkomandi bók.

Þyngdarstig 2 - bleikur kjölur

Fallega myndskreyttar lestrarbækurnar fyrir byrjendur 400 - 650 orð að lengd. Efnið spannar sígildar sögur, þjóðsögur, skáldskap og fróðleik. Textinn eflir úthald og sjálfstraust t.d. með endurtekningum í frásögninni. CD hljóðdiskur eða hljóðfæll fylgir þar sem textinn er lesinn bæði með breskum og amerískum framburði sem eflir hlustun og skilning. Kennsluverkefni er hægt að nálgast með því að smella á tengilinn undir viðkomandi bók.

Þyngdarstig 3 - grænn kjölur

Lestrarbækur fyrir þá sem komnir eru áleiðis í enskunáminu. Textinn er 600 - 900 orð, frásögnin þróaðri, meiri texti á síðu, uppbygging og orðaforði flóknari. Efnið er sígildar sögur og ævintýri, skáldskapur og fróðleikur. CD hljóðdiskur eða hljóðfæll fylgir þar sem textinn er lesinn bæði með breskum og amerískum framburði sem eflir hlustun og skilning. Kennsluverkefni er hægt að nálgast með því að smella á tengilinn undir viðkomandi bók.

Þyngdarstig 4 - rauður kjölur

Þessar lestrarbækur eru 1000 - 2000 orð að lengd. Textarnir reyna á lesskilninginn en setningarnar eru tiltölulegar stuttar og orðaforðinn algengur. Efnið er sígildar dæmisögur og ævintýri, skáldsögur og gamansögur. CD hljóðdiskur eða hljóðfæll fylgir þar sem textinn er lesinn bæði með breskum og amerískum framburði sem eflir hlustun og skilning. Kennsluverkefni er hægt að nálgast með því að smella á tengilinn undir viðkomandi bók.

Þyngdarstig 5 - blár kjölur

Í þessum flokki er textinn 1500 - 2500 orð að lengd. Bækurnar eru 64 síður og frásögnin reynir á færni lesandans. Efnisvalið er fjölbreytt - fróðleikur, goðsagnir og þjóðsögur en einnig sögur byggðar á verkum eftir Shakespeare. CD hljóðdiskur eða hljóðfæll fylgir þar sem textinn er lesinn bæði með breskum og amerískum framburði sem eflir hlustun og skilning. Kennsluverkefni er hægt að nálgast með því að smella á tengilinn undir viðkomandi bók.