ath. verð er án VSK
Skemmtileg saga um Lalla sem ætlar að verða töframaður þegar hann verður stór.
Í dag fer hann á tónleika með Klöru frænku sinni. Það gerist alltaf eitthvað óvænt í kringum hann Lalla - verða kannski engir tónleikar? Getur Lalli bjargað málunum?
Dagur með Lalla er bók sem ætluð er byrjendum í lestri. Bókin er með sérstöku lesblinduletri, góðu línubili og fallegum myndskreytingum.
Höfundur er Lalli töframaður - Lárus Blöndal
Myndhöfundur er Arnar Þór Kristjánsson