ath. verð er án VSK
Um miðja nótt vaknar Liv Walker við að tveir grímuklæddir menn ryðjast inn í herbergið hennar. Þeir draga hana út í ómerktan sendibíl – og það versta er að fjölskylda hennar stendur hjá og horfir á.
Liv er flutt í Camp Smiling Skies, afskekktar meðferðarbúðir fyrir „erfiða unglinga“. Samkvæmt bæklingnum á dvölin að hjálpa þeim að ná tökum á lífinu. Raunveruleikinn er allt annar. Strangir og miskunnarlausir leiðbeinendur stjórna öllu, allir virðast hafa eitthvað að fela og engin leið er að komast undan.
Svo fer fólk að deyja.
Liv veit að hún getur ekki treyst fjölskyldunni sinni – en fljótlega verður ljóst að hún getur heldur ekki treyst neinum í búðunum. Einhver þeirra er morðingi og hver sem er gæti orðið næsta fórnarlamb.
Spennandi og ófyrirsjáanleg unglingasaga þar sem leyndarmál, svik og grunsemdir hrannast upp – og enginn er sá sem hann virðist vera.