ath. verð er án VSK
Budi á sér stóran draum: að verða atvinnumaður í fótbolta og spila einn daginn með bestu leikmönnum heims.
En lífið í Jakarta er langt frá þeim draumi. Í stað þess að klæðast flottum fótboltaskóm vinnur Budi langa daga í verksmiðju við að sauma skóna sem aðrir fá að ganga í. Eina frelsið finnur hann þegar hann spilar fótbolta með vinum sínum á götunni.
Dag einn breytir eitt misheppnað spark öllu. Skyndilega stendur Budi í skuld við hættulegasta mann Jakarta og neyðist til að taka ákvörðun sem getur kostað hann allt.
Spennandi og áhrifamikil saga um fótbolta, vináttu og fjölskyldu – og strák sem neitar að gefast upp á draumum sínum, sama hversu ómögulegir þeir virðast.