ath. verð er án VSK
Owen á sér einn stóran draum: að verða atvinnumaður í fótbolta. Þegar hann fær tækifæri hjá einu af bestu knattspyrnuliðunum virðist draumurinn loksins vera að rætast. Nú þarf hann bara að einbeita sér að fótboltanum – og láta ekkert trufla sig.
En þegar Owen finnur leynileg skilaboð falin í nýju fótboltaskónum sínum breytist allt. Skilaboðin eru neyðarkall frá fólkinu sem vinnur í verksmiðjunni þar sem skórnir voru framleiddir. Owen kemst að því að á bak við glansandi heim atvinnufótboltans leynast dökk leyndarmál.
Nú stendur hann frammi fyrir erfiðri ákvörðun: Á hann að þegja og halda áfram að elta drauminn – eða hætta öllu til að berjast fyrir því sem er rétt?
Spennandi og áhrifamikil saga um fótbolta, vináttu, hugrekki og það að þora að láta í sér heyra.